Björgunarfélag Vestmannaeyja er nú að störfum í átta hópum víða um bæinn en rúmlega 40 manns eru að sinna útköllum þessa stundina. Arnór Arnórsson formaður BV segir mikið tjón af fjúkandi þakplötum víða um bæinn. Arnór ýtrekar að fólk eigi að halda sig innandyra á meðan veðrið gengur yfir.

Meðal vindhraði klukkan 19:00 var 40 m/s og fór í 52 m/s í hviðum á Stórhöfða