Fjölskyldutónleikar í boði Vestmannaeyjabæjar og Herjólfs!
Næsta sunnudag verða Desembertónleikar ÍBV kl. 20.30 í Höllinni. Miðar hafa rokið út og hvetjum við fólk að tryggja sér miða áður en það verður of seint.

Kl. 16.00 sama dag verða fjölskyldutónleikar í boði Vestmannaeyjarbæjar og Herjólfs þar sem frítt verður inn. Um er að ræða ca. klst tónleika sem koma öllum í gott skap. Við í knattspyrnuráði þökkum Vestmannaeyjabæ og Herjólfi fyrir að hafa tekið vel í þessa tónleikahugmynd og að vilja gefa Vestmannaeyingum tónleikana í jólagjöf.