U-18 ára landslið karla í handbolta tapaði gegn Þjóðverjum í morgun á Sparkassen Cup í Þýskalandi, lokatölur 21-28. Á myndinni sjáum við markahæstu leikmenn íslenska liðsins en þeir Benedikt Gunnar Óskarsson og Arnór Viðarsson skoruðu 7 mörk hvor.

Íslenska liðið leikur síðari leik dagsins gegn Ítalíu kl 15.40, nánar um báða leikina á heimasíðu HSÍ í kvöld.