“Í dag er mikilvægasti dagur ársins fyrir björgunarsveitirnar. Stöndum með þeim og verslum flugeldana á flugeldamörkuðum björgunarsveitanna.” segir í facebook færslu frá flugeldamarkaði björgunarsveitanna.

Björgunarfélag Vestmannaeyja er með opið til klukkan 16.00 í dag í gangi er “Borgar fyrir 2 – færð 3” tilboð á völdum vörum.

Spáð er að það lægi í Vestmannaeyjum þegar líður á kvöldið og dragi úr rigningu. Það stefnir því í ágætis skotveður.