Þórður Þórðarson landsliðsþjálfari U-19 landsliðsins valdi í dag Clöru Sigurðardóttur í æfingahóp liðsins er kemur saman dagana 22.-24. jan. Æfingarnar eru liður í undirbúningi liðsins fyrir La Manga mótið sem verður haldið á Spáni í byrjun mars og fyrir milliriðil er leikinn verður í Hollandi um miðjan apríl.