Framkvæmda- og hafnarráð Vestmannaeyja fundaði í gær þar lá fyrir endurskoðuð gjaldskrá vegna meðhöndlunar úrgangs 2020. Bæjarstjórn samþykkti að vísa gjaldskránni aftur til afgreiðslu ráðsins þar sem fjárhagsáætlun Vestmannaeyjabæjar sem samþykkt var í bæjarstjórn fyrir árið 2020 gerir ekki ráð fyrir neinum hækkunum í A-hluta sveitarsjóðs.
Niðurstaða ráðsins var á þá leið að sorphirðu og sorpeyðingargjöld heimila standa í stað milli ára og nema kr. 57.971 fyrir árið 2020. Gjaldskrá vegna fyrirtækjasorps hækkar um 3,16% en gjald á fyrirtækjasorp hefur verið óbreytt í 2 ár.