Opnað hefur verið fyrir umsóknir í Þróunarsjóð leik- og grunnskóla Vestmannaeyjabæjar fyrir skólaárið 2020-2021. Umsóknarfrestur er til og með 29. febrúar 2020.

Tilgangur sjóðsins er að stuðla að þróunar- og nýsköpunarstarfi í leik- og grunnskólum sveitarfélagsins.

Þeir sem geta sótt um í sjóðinn eru kennarar, kennarahópar, fagaðilar við skóla, einn eða fleiri skólar saman og fræðslusvið í samstarfi við skóla.

Áhersluþættir sjóðsins 2020-2021;

– Framsæknir kennsluhættir sem m.a. auka fjölbreytni í kennslu sem byggir á nýtingu tækni, teymiskennslu og þemanámi.
– Samstarf skóla og skólastiga.
– Lesskilningur.
– Íslenska sem annað mál.
– Umhverfisvitund barna.

Athugið að hægt er sækja um styrki sem tengjast öðrum áherslum en þeim sem sjóðurinn setur fram en áhersluþættir sjóðsins hafa forgang.

Sótt er um rafrænt á íbúagátt og verður umsóknum svarað fyrir 31. mars 2020

Nánari upplýsingar veitir Drífa Gunnarsdóttir, fræðslufulltrúi, sími 488-2000, netfang:[email protected]

Umsókn um styrk úr þróunarsjóði leik- og grunnskóla – rafræn umsókn í íbúagátt (linkur)