ÍBV og Valur hafa náð samkomulagi um að Auður Scheving landsliðsmarkvörður Íslands U-19 muni leika með ÍBV sem lánsmaður á komandi leiktímabili.

Auður sem á að baki 20 unglingalandsleiki fyrir Íslands hönd tekur nú slaginn með ÍBV í Pepsí Max deildinni.

ÍBV bíður Auði innilega velkomna til félagsins.