Svona koma kojurnar til með að líta út.

„Staðfest hefur verið að nýju kojurnar eru á leið til landsins og ættu að verða komnar þann 25. febrúar og til Vestmannaeyja fimmtudaginn 27. febrúar n.k.“ Þetta segir í tilkynning á Facebook síðu Herjólfs. Starfsmenn framleiðandans, FAST munu koma til Vestmannaeyja á sama tíma og hefja uppsetningu þeirra.

„Ekki er gert ráð fyrir að tafir verði á siglingaáætlun Herjólfs meðan á uppsetningu stendur þar sem unnið er að næturlagi þar til verkefninu er lokið. Meðan á vinnu við uppsetningu stendur verður salnum lokað þar sem kojurnar eru settar upp.“