Í dag undirrituðu Sunna Jónsdóttir og Fannar Þór Friðgeirsson nýja samninga við ÍBV. Bæði gera þau samning til tveggja ára en þau hafa bæði verið hjá ÍBV síðast liðin tvö tímabil. Frá þessu er greint á facebook síðu handknattleiksdeildar ÍBV.

Sunna og Fannar hafa verið í lykilhlutverkum hjá liðunum ÍBV og mikill fengur fyrir félagið að tryggja sér krafta þeirra áfram. Sunna hefur skorað 75 mörk í 17 leikjum í vetur en Fannar hefur skorað 44 mörk í 18 leikjum.