Vel rekið og fjárhagslega sterkt bæjarfélag notar góða afkomu til að lækka álögur á bæjarbúa og/eða bæta þjónustuna við þá. Ekki er gengið á eignir til að fjármagna rekstur heldur eru árlegar tekjur látnar standa straum af árlegum útgjöldum. Nákvæmlega þetta hefur núverandi bæjarstjórnarmeirihluti gert.

 

Þetta kann einhverjum að þykja svo augljóst að það sé nánast barnalegt að tíunda það í grein; hvað þá að þurfa að gera það til að svara oddvita D-listans í bæjarstjórn sem skrifaði í vikunni sérkennilegan pistil með fyrirsögninni ”Vinstrið er við völd”.

 

Þar er m.a. að finna þá skrýtnu staðhæfingu að nú sé verið ”… að eyða þeim sjóðum sem Sjálfstæðisflokkurinn hefur verið í langan tíma að byggja upp”.

 

Og á facebooksíðu D-listans í Eyjum er svo bætt um betur með þessum samsetningi: ”Atkvæðakaup vinstri meirihlutans á kostnað uppsafnaðs sparnaðs hægri meirihlutans. Það er sárt að horfa á árangur hagræðingaraðgerða sem áttu að verða til heilla bæjarbúa notaðan á þennan hátt”.

 

Hvernig ber eiginlega að skilja þetta? Í fyrsta lagi er staðhæfingin auðvitað kolröng. Það hefur ekki verið gengið á neinar eignir eða sjóði bæjarins til að fjármagna rekstur hans.

 

Í öðru lagi mætti ætla af orðalaginu að það hafi verið hinn fallni ”hægri meirihluti” sem hefði fyrir eiginn reikning önglað þessu fé saman en ekki bæjarbúar.

 

Í þriðja lagi virðist gæta þess misskilnings hjá D-lista fólkinu að bæjarsjóður sé einhverskonar sparibaukur. Í hann eigi að safna ávinningi af góðum rekstri í stað þess að láta bæjarbúa njóta hans með lægri álögum og/eða betri þjónustu, eins og gert er í dag. Hvort viðhorfið skyldi nú lýsa meiri vinstrimennsku, svo vísað sé til orða oddvitans?

 

Mistök leiðrétt

 

Og hvert var svo tilefni þessa kostulega málflutnings?

Jú, meirihluti bæjarstjórnar samþykkti að stofna aftur embætti hafnarstjóra til að leiðrétta þannig þau stjórnunarlegu mistök sem gerð voru árið 2010 þegar embættið var lagt niður.

 

Það kemur skýrt fram í minnisblaði sem starfshópur framkvæmda- og hafnarráðs skilaði af sér að bæta þurfi skipulag og umgjörð starfsemi hafnarinnar töluvert svo vel sé. Mikið álag á stjórnendur hafnarinnar og langar og óskýrar boðleiðir valda því að stjórnun hafnarinnar er ekki eins og best verður á kosið. Skýra þurfi ábyrgðarsvið betur og gegnir hafnarstjóri þar lykilhlutverki.

 

Og það er nákvæmlega þetta sem verið er að gera.

 

Enn ein röng staðhæfing

 

Og eins og ofangreint sé ekki nóg þá bætir oddviti D-listans við enn einni rangri staðhæfingu og sakar núverandi meirihluta um að ”…setja á ný fjárfrek stöðugildi sem hefur farið stöðugt fjölgandi á kjörtímabilinu”.

 

Stöðugildum hefur fjölgað um samtals 1 á kjörtímabilinu; aðeins eitt. Stofnuð var 50% staða fjölmenningarfulltrúa og 50% staða íþrótta-, æskulýðs- og tómstundafulltrúa. Hvorttveggja til að bæta þjónustuna við bæjarbúa.

 

Það á svo eftir að koma í ljós hvort endurskipulagningin á umhverfis- og framkvæmdasviði, m.a. með tilkomu hafnarstjóra, leiði af sér nettófjölgun stöðugilda eða tilfærslur og breytingar á starfshlutföllum.

 

Held áfram að vona

 

Ég hef um skeið vonað og hlakkað til að sá dagur rynni upp að minnihlutinn í bæjarstjórn kæmi aðeins upp úr skotgröfunum og tæki í staðinn upp málefnalega gagnrýni á meirihlutann. Það uppbyggilega samtal myndi síðan leiða fram þær niðurstöður sem væru hagfelldastar fyrir bæjarbúa. Við vorum jú öll kosin til að gæta hagsmuna þeirra. Við gætum svo auðvitað verið ósammála um ýmsa hluti en það væri þá eftir vitrænar rökræður.

 

Miðað við þann málflutning sem ég hef rakið hér að ofan þá hefur sú von heldur dvínað; en ég ætla samt að halda áfram að vona!

 

 

Íris Róbertsdóttir

bæjarstjóri