ÍBV og Haukar mætast í undanúrslitum Coca cola bikarsins í dag klukkan 18:00. Liðin mættust síðast í undanúrslitum 2018 þá viðureign vann ÍBV og stóð að lokum uppi sem bikarmeistari. ÍBV hefur níu sinnum leikið í undanúrslitum og þrisvar sinnum orðið bikarmeistari. Haukar eiga öllu ríkari bikarhefð en liðið hefur 19 sinnum leikið í undanúrslitum og sjö sinnum fagnað bikarmeistaratitli síðast árið 2014.

Það er því ljóst að um hörku viðureign er að ræða í dag eins og venjulega þegar þessi lið mætast.