Eftir tilkynningu frá heilbrigðisráðherra í morgun um takmarkanir á samkomum vegna Covid-19 vírussins (samkomubanns) hefur stjórn HSÍ tekið þá ákvörðun að fresta öllum leikjum í mótum á vegum HSÍ ótímabundið frá og með kl.17.00 föstudaginn 13.mars.

HSÍ ásamt öðrum sérsamböndum fundaði með ÍSÍ í dag og var þessi ákvörðun tekin á stjórnarfundi í beinu framhaldi.

HSÍ mun fylgjast með framgangi samkomubanns stjórnvalda og bregðast við því eftir því sem þurfa þykir.

Stjórn HSÍ vill beina því til forsvarsmanna og þjálfara félaganna að fara að einu og öllu eftir tilmælum stjórnvalda þegar kemur að starfi félaganna á meðan samkomubanninu stendur.