Eins og komið hefur fram í fjölmiðlum í dag hefur heilbrigðisráðherra ákveðið að virkja heimildir sóttvarnalaga sem felur m.a. í sér að skólahald verður takmarkað tímabundið. Nánari útfærslur verða unnar samkvæmt tilmælum stjórnvalda.

Sveitarfélagið vinnur nú að skipulagningu starfs m.v. ofangreindar ákvarðanir. Þegar hefur verið ákveðið að mánudaginn 16.mars verði starfsdagur í grunnskólum, leikskólum, tónlistarskóla, frístund og íþróttamiðstöð í Vestmannaeyjum til þess að stjórnendur og starfsmenn sveitarfélagsins geti skipulagt skólastarfið sem best á þessu tímabili sem takmörkunin nær til.

Foreldrar eru beðnir um að fylgjast vel með upplýsingum sem birtast munu um helgina og á mánudaginn m.a. á heimasíðu sveitarfélagsins og heimasíðum grunn- og leikskóla. Þá eru í undirbúningi sameiginlegar leiðbeiningar um skólastarf,  frístund,  íþróttamannvirki, tónlistaskóla og aðrar tómstundir barna.