Í ljósi heimsútbreiðslu COVID-19 og tilmæla almannavarna og sóttvarnalæknis, hefur Vestmannaeyjabær gripið til þeirrar ráðstöfunnar að takmarka opnunartíma stofnana bæjarins. Tilgangurinn er að stuðla að öryggi starfsmanna og lágmarka hættu á að þjónustan rofni.

Fjöldatakmarkanir eru í íþróttahúsi.

Athugið að boðið er upp á vistun leikskólabarna annan hvern dag til þess að mæta skilyrðum samkomubannsins.

Opnunartímar stofnana eru sem hér segir:

Stofnun Opnunartímar á starfsstöð
Grunnskóli Vestmannaeyja 4 kennslustundir á dag. Nánara skipulag kemur frá skóla.
Víkin 5 ára deild 7:45-15:30 (sjá nánari útfærslu frá skóla)
Kirkjugerði 7:45-15:30 (sjá nánari útfærslu frá skóla)
Sóli 7:45-15:30 (sjá nánari útfærslu frá skóla)
Frístund 12-15 í Hamarskóla (sjá nánari útfærslu frá skóla)
Tónlistarskóli Óbreytt starfsemi. Hópatímar falla niður
Sambýlið Engar heimsóknir leyfðar
Hraunbúðir Engar heimsóknir leyfðar
Heimaey hæfingarstöð Engar heimsóknir leyfðar
Endurvinnslan Lokuð tímabundið
Eldheimar 13-15 miðvikudaga til sunnudaga
Sagnheimar 13-15 alla virka daga
Bókasafn 13-15 alla virka daga
Héraðsskjalasafn 13-15 alla virka daga
Bæjarskrifstofur- Bárustíg 15 10-12 alla virka daga
Bæjarskrifstofur- Rauðagerði 10-12 alla virka daga
Bæjarskrifstofur- Tæknideild 10-12 alla virka daga
Höfnin Enginn opnunartími.Vaktsími hafnarvarða 893-0027
Þjónustumiðstöðin Enginn opnunartími. Símanúmer 488-2500
Féló (félagsmiðstöðin) Lokað þessa viku vegna flutning og svo endurskoðað
Íþróttamiðstöðin Óbreyttur opnunartími. Breytt starfsemi (útfærsa auglýst)
Herjólfshöllin Takmarkaður aðgangur (16 ára og eldri hafa aðgang)
Týsheimilið Lokað
   

Hægt er að beina erindum í gegnum síma á hefðbundnum opnunartímum (dagvinnutíma) eða með tölvupósti á [email protected]. Þeim tilmælum er beint til fólks að beina sem flestum erindum með þeim hætti og takmarka komur á staðinn. Hægt verður að hringja á hefðbundinn hátt í gegnum skiptiborð, s. 488 2000. Ef ekki næst í starfsmann taka þjónustufulltrúar skilaboð.

Hjá nokkrum stofnunum bæjarins hefur verið ákveðið að skipta upp starfsfólki í ninni hópa (þar sem sumir vinna heima og aðrir á vinnustað) til að minnka líkur á að allir veikist á sama tíma og tryggja að þjónustan rofni ekki.

Fjölmennir fundir og viðburðir á vegum bæjarins eru ekki heimilir.

Ákvörðun um skerta opnunartíma stofnana bæjarins á við meðan samkomubann stjórnvalda er í gildi, en ákvörunin endurskoðaðuð reglulega.