Samkomubann á Íslandi tók gildi í dag. Í því felst bann á samkomum þar sem 100 eða fleiri koma saman. Smærri samkomur skulu huga vel að hreinlæti og skulu vera a.m.k. tveir metrar á milli manna. Þetta hefur mikil áhrif á alla starfsemi og þjónustu sveitarfélagsins.

„Stjórnendur og starfsfólk sveitarfélagsins hefur um helgina unnið að undirbúningi viðbragða við samkomubanninu sem tekið hefur gildi vegna Covid-19 veirunnar. Í morgun áttu svo stjórnendur bæjarins fjarfundi með stjórnendum leikskólanna, grunnskólans og tónlistarskólans, íþróttahússins, frístundar og Féló, um skipulagningu skóla- og frístundastarfs meðan á samkomubanni stendur. Umræddir stjórnendur munu svo funda í dag með öðru starfsfólki um frekari útfærslu starfsins á næstu vikum,“ segir Íris Róbertsdóttir, bæjarstjóri í tilkynningu nú í morgun.

„Ljóst er að starfsemi og þjónusta sveitarfélagsins verður með breyttu sniði næstu fjórar vikurnar. Allt skipulag skólahalds og annarar starfsemi sveitarfélagsins miðast að því að fara í einu og öllu eftir fyrirmælum yfirvalda um samkomubann.“

Þá munu allar íþróttaæfingar falla niður í dag og til og með 23. mars nk., skv. tilmælum frá Íþróttasamanbandi Íslands. Tíminn verður notaður til að skipuleggja framhaldið.

„Allir íbúar eru hvattir til að leita almennra upplýsinga um faraldurinn og viðbrögð við honum inni á www.covid.is – þar er að finna allar nauðsynlegar upplýsingar sem gilda næstu fjórar vikurnar,“ segir í tilkynningunni.

Tilkynning um skólastarf og fyrirkomulag opnunar annarra stofnana bæjarins verður send út síðar í dag.