Starfsmaður Sóla hefur greinst með kórónuveirusýkingu en viðkomandi hefur ekki verið við störf undanfarna daga í skólanum. Í samráði við umdæmislækni sóttvarna, aðgerðastjórn og rakningarteymi hefur þó verið tekin ákvörðun um að loka leikskólanum á meðan málið er skoðað nánar. Þetta er gert í því skyni að hindra mögulega útbreiðslu smits. Um er ræða úrvinnslukví á meðan rakningarteymi vinnur úr upplýsingum og i framhaldi verður haft samband við þá sem þurfa að fara í lengri sóttkví.

Starfsfólk og foreldrar hafa verið látnir vita af stöðunni sem upp er komin og verður ekkert skólahald þar til tekin hefur verið ákvörðun um annað.

Farið verður yfir stöðuna með viðbragðsaðilum eftir því sem málin skýrast og foreldrar og starfsmenn upplýstir um þróun mála.

Íris Róbertsdóttir, bæjarstjóri
Helga Björk Ólafsdóttir, skólastýra Sóla