Í frettum undanfarið hefur verið sagt frá sjófuglum  hér í Vestmannaeyjum í fjörum við Dyrhólaey og Þorlákshöfn sem hafa verið mjög illa útleiknir af grút og olíu. Fjölda fugla hefur verið komið til starfsfólks Sea Life hér í Eyjum sem hafa  hreinsað fuglanna og komið til bjargar. Talsvert hefur verið um grútarblauta fugla hér í höfninni og einnig hafa fundist olíublautir fuglar víðar  á Heimaey.

Stjórn Náttúrustofu Suðurlands vill hvetja alla sem fara með efni sem geta valdið sjófuglum og eða umhverfi slíkri mengun  að fara að öllu með gát, og gera allt sem í þeirra valdi stendur til að koma í veg fyrir að olía eða annað sem er lífríkinu hættulegt berist ekki í sjó. Nú fer sá tími í hönd að sjófuglar fari að huga að uppsátri til varps því þurfa allir að vera vakandi yfir því að slík mengun sem hefur orðið mörgum fuglinum að aldurtila komist ekki í tæri við sjófugla hvorki innan hafnar né utan. Stöndum saman að vöktun og velferð sjófugla hér í Eyjum og við suðurströndina.

 Stjórn Náttúrustofu  Suðurlands