„Ábyggilega er mun líklegra að fá stærsta lottóvinninginn en að draga furðafiska um borð á sama stað í tveimur veiðiferðum í sömu vikunni!“ segir Kjartan Guðmundsson, skipstjóri á Drangavík VE.

 

Áhöfnin kom með að landi á þriðjudaginn gulasta þorsk sem sést hefur, hreinasta furðufyrirbæri og einsdæmi svo vitað sé.

 

Í næstu veiðiferð var Drangavíkin á veiðum á svipuðum slóðum og á heimleiðinni, að morgni fimmtudags, var tekið hal á nákvæmlega sama stað og fyrr, á svokölluðum 70 faðma blettum 9 mílur vestur af Surtsey. Einn þorskurinn sem dreginn var úr sjó skar sig úr og það sem um munaði. Hann var skjöldóttur!

 

Gísli Jónsson, sérgreinalæknir fisksjúkdóma hjá Matvælastofnun, fékk myndir af fyrirbærinu líkt og af gulbínóanum fyrr í vikunni. Hann svaraði um hæl í tölvupósti:

 

Ja, hvur skrambinn, þetta gæti verið hálfbróðir! Hér sannast enn og aftur: „sjaldan er ein báran stök“. Þessi vanskapnaður er af sama meiði og hinn. Hér vantar litafrumur í roðið en bara að hluta til. Akkúrat slíkar breytingar sjáum við af og til í bleikju sem verða þá vel flekkóttar. Niðurstaða rannsókna á þeim leiða í ljós ákveðinn erfðagalla en svo þurfa umhverfisaðstæður að vera með sérstökum hætti til að framkalla þennan „galla“.

 

Gunnar Jónsson, fiskifræðingur á eftirlaunum, fékk líka myndir af furðufiski nr. 2. Hann varð nánast mállaus og sagði að slíkt væri sjaldgæft, en sagði samt: „Þarna við Surtsey virðist vera vistheimili fyrir erfðafræðilega afvegaleidda þorska. Sannarlega verðugt rannsóknarefni.“

 

Sverrir Haraldsson, sviðsstjóri bolfisksviðs Vinnslustöðvarinnar, segir að gárungar í Eyjum tengi furðuþorskana tvo við veirufaraldur til lands og sjávar. Vinnslustöðvarmenn heyri líka glósur um að uppákomurnar séu sviðsettar og þorskarnir jafnvel málaðir til að verða skrítnir og komast í fréttir!

 

„Það er af og frá og við höldum fiskunum til haga. Þetta er eins raunveruleg uppákoma og mest gæti. Ég neita því hins vegar ekki að við yrðum algjörlega orðlaus ef Drangavík kæmi með þriðja furðuþorskinn að landi en þá sannast við fornkveðna og heilaga: Allt er þá þrennt er. Þá yrði þríheilagt á „blettunum“ við Surtsey.“

 

  • Fregnir hafa borist af því að svipaður þorskur og sá sem Drangavík fékk í seinna skipti hafi veiðst á svipuðum slóðum fyrir fimm árum. Binni í Vinnslustöðinni skrifar á fésbókarsíðu sína 21. mars:
    • Skúli Skúlason, sem var skipstjóri hjá okkur fyrir nokkru, segir í athugasemd á fésinu hjá mér að Jóhanna ÁR hafi fengið svipaðan fisk árið 2015 við Surtsey.