„Mér heyr­ist á mönn­um í kring­um mig að það sé óhjá­kvæmi­legt að draga sam­an segl­in,“ seg­ir Sig­ur­geir Brynj­ar Krist­geirs­son, fram­kvæmda­stjóri Vinnslu­stöðvar­inn­ar í Vest­manna­eyj­um.

Hann tek­ur fram að hann þekki ekki ná­kvæm­lega til rekstr­ar hjá öðrum, en nán­ast lok­un í sölu á fersk­um fiski, sam­komu­bann miðað við 20 manns og 10 manns í Eyj­um, fleiri aðgerðir, sótt­kví og veik­indi muni hafa áhrif. Sig­ur­geir seg­ir að staðan sé met­in dag­lega, en hún sé óneit­an­lega að þyngj­ast.

Hann seg­ir að skoðað verði hversu stíft verði sótt því ekki sé skyn­sam­legt að vera með mikið af óunn­um fiski við þess­ar aðstæður. Staðan sé óneit­an­lega skrýt­in í Vest­manna­eyj­um þessa dag­ana, marg­ir veik­ir og marg­ir í sótt­kví. Núna ætti allt að vera á fullri ferð, há­bjargræðis­tím­inn og vetr­ar­vertíð í há­marki. Til þessa hafi fyr­ir­tækið náð að halda full­um dampi.

Hjá fyr­ir­tæk­inu sé mik­il áhersla á sölt­un, enda hafi þurrkaður salt­fisk­ur mikið geymsluþol. Mikið af salt­fisk­in­um fari til Portúgal, þar sem Vinnslu­stöðin keypti fyr­ir­tæki ný­verið. Kína virðist vera að taka við sér og þá hafi um helg­ina borist fyr­ir­spurn um hvort fyr­ir­tækið gæti af­hent fersk­an fisk í gám­um til Evr­ópu. Sig­ur­geir seg­ir að það mál sé í skoðun, eitt sé að geta af­hent fisk, annað sé að þora í slík viðskipti því ástandið breyt­ist hratt í kaupa­lönd­un­um.

mbl.is