Þrjú sýni til viðbótar hafa greinst jákvæð frá Vestmannaeyjum og eru staðfest smit á COVID-19 því orðin 57 talsins. Allir aðilarnir voru þá þegar í sóttkví og eru nú í einangrun. Fjöldi þeirra sem settir hafa verið í sóttkví er 594 og 173 hafa lokið sóttkví.

Brýnt er fyrir fólki nú sem endranær að fara að leiðbeiningum, halda tveggja metra fjarlægð við náungann og hjálpa til við að hefta útbreiðslu sjúkdómsins. Saman gengur okkur betur.

Aðgerðastjórn