Heilbrigðisráðuneytið hefur birt lista yfir fyrirtæki sem fengið hafa undanþágu frá samkomubanni svo unnt sé að halda starfsemi þeirra órofinni. Heilbrigðisráðherra veitti undanþáguna að undangengnu samráði við sóttvarnalækni, almannavarnadeild ríkislögreglustjóra og Matvælastofnun.

Tvö fyrirtæki frá Vestmannaeyjum má finna á listanum en það eru Ísfélag Vestmannaeyja hf. og Vinnslustöðin hf. ásamt dótturfyrirtækjum.

Fram kemur á síðu ráðuneytisins að við mat á því hvort veita skuli undanþágu frá takmörkunum á samkomum er horft til þeirra viðmiða sem sóttvarnalæknir byggir á við veitingu undanþága frá sóttkví. Þau felast í því að um sé að ræða samfélagslega ómissandi innviði sem mega ekki stöðvast vegna lífsbjargandi starfsemi, svo sem raforku, fjarskipta, samgangna, heilbrigðisstarfsemi, löggæslu, sjúkraflutninga og slökkviliða. Önnur starfsemi sem mögulega getur fallið undir heimild til undanþágu skv. auglýsingu heilbrigðisráðherra um takmarkanir á samkomum er starfsemi fyrirtækja sem telst kerfislega og efnahagslega mikilvæg, svo sem til að tryggja innviði, sorphirðu, aðföng, mætvælaframleiðslu, flutninga matvæla, lyfja og annarra nauðsynjavara eða efnahagslegt öryggi ríkisins með útflutningi. Veiting undanþágu þarf einnig að byggjast á því að því sem næst ómögulegt sé að aðlaga starfsemi að reglum auglýsingar nr. 243/2020.