Kylfingar í Vestmannaeyjum geta tekið gleði sína því golfklúbbur Vestmannaeyja hefur opnað á sumarflatir á fyrstu 12 holum vallarins. Karl Haraldsson hjá GV segir að þetta sé heldur fyrr en í meðal ári og að völlurinn komi mjög vel undan vetri.