Ársreikningur Vestmannaeyjabæjar fyrir árið 2019 verður tekin til fyrri umræðu á fundi bæjarstjórnar Vestmannaeyja í dag. Ársreikningurinn sýnir glögglega sterka stöðu bæjarsjóðs og að rekstur bæjarins hefur gengið vel.

Árið 2019 námu heildarrekstrartekjur samstæðu Vestmannaeyjabæjar 6.372 m.kr. og rekstrargjöld fyrir afskriftir og fjármagnsliði 5.682 m.kr. Rekstrarafkoma sveitarfélagsins var jákvæð um 665,9 m.kr samkvæmt samstæðureikningi sveitarfélagsins og hjá A-hlutanum var rekstrarafkoman 455,5 m.kr. Afkoman er töluvert betri en gert var ráð fyrir í fjárhagsáætlun 2019, en þar var einungis gert ráð fyrir 194,2 m.kr. afgangi hjá samstæðu Vestmannaeyjabæjar.

Það eru einkum tvö atriði sem skýra þessa góðu rekstrarafkomu: Annars vegar urðu skatttekjur 287 m.kr. hærri en áætlað hafði verið í fjárhagsáætlun 2019 og hins vegar varð rekstrarafgangur Vestmannaeyjahafnar 91 m.kr. hærri en gert var ráð fyrir. Þessir þættir skýra 80% af þeim umfram afgangi sem nú er raunin. Rekstur annarra málaflokka gekk einnig vel og skýra um 94 m.kr hærri afkomu en gert var ráð fyrir í fjárhagsáætlun.

Hjá aðalsjóði var veltufé frá rekstri 917 m.kr. og hjá samstæðu Vestmannaeyjabæjar var veltufé frá rekstri 1.198 m.kr.

Markvisst hefur verið unnið að því síðustu ár að greiða niður skuldir bæjarsjóðs og er skuldastaða Vestmannaeyjabæjar við lánastofnanir mjög góð. Í lok árs 2019 voru vaxtaberandi skuldir samstæðunnar með næsta árs afborgunum 314 m.kr. og fyrir A-hlutann 103 m.kr. Hafnarsjóður kláraði í mars 2020 að greiða upp lán sín og Aðalsjóður mun verða skuldlaus árið 2024. Frá og með árinu 2025 munu einu langtímaskuldir sveitarfélagsins liggja í félagslega íbúðakerfinu og stærsti hluti þeirra skulda ber aðeins 1% vexti.

Skuldaviðmið skv. reglugerð þar um, mælist ekki lengur og skuldahlutfallið hjá samstæðunni er 82,5%. Hámarks skuldahlutfall skv. sveitarstjórnarlögum er 150%. Veltufé frá rekstri nemur 18,8% af heildartekjum samstæðunnar.

Heildareignir samstæðu Vestmannaeyjabæjar námu 14.297 m.kr. í árslok 2019. Þar af stóð handbært fé og skammtímafjárfesting í 3.340,9 m.kr. Allar fjárfestingar bæjarins á árinu eru fjármagnaðar með handbæru fé og námu fjárfestingar samstæðu Vestmannaeyjabæjar 699,3 m.kr. á árinu 2019.

Allar kennitölur í rekstri sýna góða fjárhagsstöðu Vestmannaeyjabæjar. Veltufjárhlutfall A-hlutans er 3,60 og eiginfjárhlutfallið er 57,7%. Veltufjárhlutfall samstæðunnar er 5,96 og eiginfjárhlutfall 63,2%.

Styrkleikar sveitarfélagsins koma vel fram í góðri afkomu ársins 2019. Fjármálastjórnun bæjarins er fagleg og vel ígrunduð. Til að mynda eru tekjur alla jafna varlega áætlaðar og gjöld eru nokkuð nærri fjárhagsáætlun ársins. Þrátt fyrir góðan tekjugrunn Vestmannaeyjabæjar, sem hefur m.a. samanstaðið af; a) sterkum sjávarútvegi og tengdum greinum; b) ferðaþjónustu sem á nú undir högg að sækja vegna heimsfaraldursins og; c) mikilli atvinnuþátttöku almennt, sem dregið hefur verulega úr frá því í mars, þarf áfram að sýna aðgát og skynsemi við ráðstöfun skattfjár Vestmannaeyinga, sérstaklega um þessar mundir. Rekstrarkostnaði verður áfram stillt í hóf og horft til rekstrarhagræðingar þar sem við á. Vandað verður til verks við fjárfestingar og framkvæmdir og m.a. horft til einkafjárfestingar, atvinnuhorfa og verkefnastöðu fyrirtækja við ákvarðanir um fjárfrekar framkvæmdir á vegum Vestmannaeyjabæjar á þessum sérstöku tímum. Viðspyrna við veiruógn sem bæjastjórn samþykkti 16. apríl sl. samanstanda af aðgerðum sem munu hafa veruleg áhrif á rekstur sveitarfélagsins á árinu 2020. Vestmanneyjabær er reiðubúinn að bæta í til að halda uppi atvinnu í Eyjum. Jafnframt hefur verið ákveðið að ráðast í markaðsátak með ferðaþjónustunni í Vestmannaeyjum fyrir komandi sumar. Þá verður áhersla lögð á nýsköpun, frumkvöðlastarfsemi og fleiri spennandi tækifæri í nánustu framtíð.

Vestmannaeyjum 30. apríl 2020.

Íris Róbertsdóttir, bæjarstjóri