Vinnslustöðin auglýsti starf vinnslustjóra í saltfisk um miðjan aprílmánuð. Tæplega 40 umsóknir bárust í starfið. Umsóknir bárust bæði frá Íslandi og Portúgal en auglýsingin var einnig birt í portúgölskum miðlum. “Á næstu dögum verður farið yfir umsóknir og í kjölfarið rætt við þá umsækjendur sem koma til greina. Ætlunin er að ráðningu verði lokið fyrir lok þessa mánaðar,” sagði Lilja Björg Arngrímsdóttir yfirmaður starfsmannamála hjá VSV í samtali við Eyjafréttir.