Með hækkandi sól, afléttingu á bönnum og fækkun á Covid 19 tilfellum fer vonandi að verða pláss fyrir fleiri jákvæðar og skemmtilegar fréttir á samfélagsmiðlunum.
Eins og gefur að skilja hafa undanfarnar vikur verið meira og minna undirlagðar af Covid 19 og hefur fátt annað komist að. Með þessum orðum hefst pistill sem Friðrik Páll Arnfinnsson slökkviliðsstjóri ritar inn á facebook síðu slökkviliðs Vestmannaeyja í dag.

Friðrik kemur inn á þær breytingar sem hafa átt sér stað á starfsemi slökkviðliðsins á síðustu vikum. “Líkt og hjá mörgum öðrum stofnunum og fyrirtækjum þá hefur starfsemi slökkviliðsins verið með óhefðbundnu sniði undanfarinn mánuð, en í dag er réttur mánuður síðan æfingar o.fl. voru felldar niður, stöðinni lokað fyrir almenningi og liðinu skipt upp í þrjár aðskildar vaktir, allt með það að markmiði að minnka samneyti og mögulegt smit á mili manna og að geta haldið eðlilegu viðbragði í neyðartilvikum.
Nú eru sem betur fer hlutirnir hægt og rólega að færast í eðlilegt horf aftur og var fyrsta æfingin eftir þessi ósköp haldin s.l. laugardag.
Við megum samt ekki sofna á verðinum í sumar, þetta ástand er því miður ekki búið, hvorki hér né annarstaðar í heiminum. Virðum því þau boð og bönn sem í gildi eru, viðhöldum 2 m reglunni eins og kostur er, pössum upp á handþvott og sprittun og umfram allt beitum almennri skynsemi.

Eitt er það þó sem faraldurinn hefur sem betur fer ekki náð að breyta að neinu marki en það er uppbygging á nýju slökkvistöðinni okkar sem miðar örugglega áfram en í dag var fyrsta steypan látin renna í mótin…….nú fara hlutirnir að gerast hratt.

Sólarkveðjur og gleðilegt sumar.

Slökkviliðsstjóri”