Sýslumaðurinn í Vestmannaeyjum sóttist eftir stuðningi frá Vinnumálastofnun fyrir sumarstörfum fyrir námsmenn og fékk úthlutað fyrir tveimur störfum.
Vinnumálastofnun stýrir átakinu varðandi sumarstörf námsmanna sem efnt er til í samvinnu við stofnanir ríkisins og sveitarfélög. Sveitarfélögin auglýsa þessi störf á sínum heimasíðum en störf hjá hinu opinbera verða auglýst og opnað fyrir umsóknir þann 26. maí nk. á heimasíðu Vinnumálastofnunar. Ráðningartímabil eru tveir mánuðir. Þessi störf eru ætluð námsmönnum sem eru á milli anna, þ.e. eru að koma úr námi og eru skráðir í nám í haust, og eru 18 ára á árinu eða eldri.

Eins og við höfum áður sagt frá auglýsir Vestmannaeyjabær sömuleiðis fjögur störf fyrir sama hóp.

1. Nútímavæðing stjórnsýslu bæjarins þar sem óskað er eftir námsmanni til að ráðast í átak í ferlum við birtingu auglýsinga og reglna í Stjórnartíðindum og á vef bæjarins. Jafnframt að yfirfara reglur Vestmannaeyjabæjar um starfsmannamál og uppfæra eftir þörfum. Einnig að leggja grunn að hönnun og miðlun upplýsinga til handa starfsmönnum bæjarins í gegnum innri upplýsingakerfi. Markmiðið að auka upplýsingaflæði og auðvelda dagleg störf og stuðning við fjölbreytta starfsemi bæjarins.

2. Skipulag og stækkun hafnarsvæðis þar sem óskað er eftir námsmanni til að huga að skipulagi hafnarsvæðisins og stækkunarmöguleikum, þ.m.t. söfnun upplýsinga um stórskipahöfn. Jafnframt felst í verkefninu greining á stöðu Vestmannaeyjahafnar í samanburði við aðrar hafnir á landinu. Verkefnið er unnið í samráði við hafnarstjóra Vestmannaeyjabæjar og felst í upplýsingaöflun, mati á umfangi og gerð kostnaðaráætlunar.

3. Skráning örnefna í samvinnu við Landmælingar Íslands og skráning safnkosts Náttúrugripasafns. Hópur áhugamanna hefur undanfarin ár unnið að söfnun örnefna í Vestmannaeyjum. Óskað er eftir nemanda til að færa helstu örnefni inn í kortasjá Landmælinga Íslands og QPR merkja þau. Skráning fer fram í gagnagrunni Landmælinga og verður einnig aðgengileg á vefsvæði Vestmannaeyjabæjar. Jafnframt heldur nemandinn utan um vinnu 5-7 manna áhugahóps sem hittist reglulega til að fara yfir verkefnið. Þá er viðkomandi ætlað að skrá safnkost Náttúrugripasafns Vestmannaeyja með nýjum hætti og miðla í gegnum upplýsingakerfi safnsins, snertiskjái.

4. Grænar lausnir í fráveitu og hönnun þeirra. Greina og móta tillögur að grænum ofanvatnslausnum í fráveitukerfi Vestmannaeyjabæjar með því markmiði að minnka dælingu á regnvatni og spara þar með orku og kostnað. Einnig að hanna tvöfalt kerfi í götum þar sem einfalt kerfi er til staðar. Fráveitukerfi Vestmannaeyjabæjar er uppbyggt af tvöföldu kerfi að litlum hluta og finna þarf hagkvæmar lausnir á því sem ekki er tvískipt. Tilvalið fyrir verk- eða tæknifræðinema. Viðkomandi þarf að geta unnið við teikniforrit, t.d. MIcrostation.

Umsóknarfrestur á þeim störfum er til og með 25. maí nk.