Sigurður Ingi Jóhannsson samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra, kynnti í dag úthlutun styrkja samtals að upphæð 443 milljóna kr. til ljósleiðaravæðingar í dreifbýli, sem veittir eru í tengslum við landsátakið Ísland ljóstengt á grundvelli fjárfestingarátaks ríkisstjórnarinnar. Styrkir til sveitarfélaga námu að þessu sinni samtals 317,5 milljónir kr. Einnig var samið við Neyðarlínuna sem fékk 125,5 milljónir kr. til að leggja ljósleiðara og byggja upp fjarskiptainnviði utan markaðssvæða.

Nýverið var samþykkt 400 milljóna kr. viðbótarfjárveiting til fjarskiptasjóðs sem verja skal til verkefnisins og tengdrar innviðauppbyggingar. Fjárveitingin er liður í sérstöku tímabundnu fjárfestingarátaki stjórnvalda fram á næsta vor, til að sporna gegn samdrætti í hagkerfinu í kjölfar heimsfaraldurs kórónuveiru. Þessu til viðbótar leggur samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytið til 43 milljónir kr. sem framlag úr byggðaáætlun.

„Við erum óðfluga að nálgast takmark okkar að leggja ljósleiðara um nánast allt dreifbýli landsins. Með viðbótarfjárveitingu í ár er unnt að flýta slíkum framkvæmdum enn frekar. Verkefnið Ísland ljóstengt er ein af lykil forsendum búsetugæða, atvinnusköpunar og samkeppnishæfni landsins alls,“ segir Sigurður Ingi Jóhannsson, samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra.

Listi yfir styrkþega
Alls var samið við 17 sveitarfélög um styrk úr fjarskiptasjóði en átta þeirra fá einnig úthlutað byggðastyrk úr byggðaáætlun stjórnvalda. Eitt sveitarfélag, Árneshreppur, fær styrk af byggðaáætlun. Auglýst var eftir umsóknum 8. maí sl. og er niðurstaðan eftirfarandi:

 Ísland ljóstengt Fjarskiptasjóður Byggðaáætlun
Árneshreppur 3.000.000
Bláskógabyggð 44.310.000
Dalabyggð 8.700.000 4.000.000
Fjarðabyggð 2.500.000 2.350.000
Flóahreppur 10.720.000
Grýtubakkahreppur 984.000 650.000
Hrunamannahreppur 10.813.000
Ísafjarðarbær 3.007.000 2.000.000
Kaldrananeshreppur 9.500.000 8.000.000
Mosfellsbær 10.960.000
Neyðarlínan ohf. 125.510.000
Reykjavíkurborg 48.960.000
Seyðisfjarðarkaupstaður 6.512.000 4.000.000
Skaftárhreppur 32.266.000 15.000.000
Sveitarfélagið Árborg 14.040.000
Sveitarfélagið Skagafjörður 23.594.000
Sveitarfélagið Vogar 22.583.000
Vestmannaeyjabær 18.056.000
Vesturbyggð 6.985.000 4.000.000
Samtals kr. 400.000.000 43.000.000

 

Nánar um Ísland ljóstengt
Ísland ljóstengt er tímabundið landsátak ríkisins og sveitarfélaga í ljósleiðarauppbyggingu utan markaðssvæða í dreifbýli. Markmið átaksins, sem er eitt af áherslumálum ríkisstjórnarinnar, er að tryggja nær öllum lögheimilum og fyrirtækjum á slíkum svæðum, aðgang að ljósleiðaratengingu.

Verkefnið hófst formlega vorið 2016. Úthlutunin í ár er fimmta úthlutun fjarskiptasjóðs og jafnframt sú fjórða á grundvelli byggðaáætlunar á jafn mörgum árum. Stefnt er að lokaúthlutun á grundvelli Ísland ljóstengt á næsta ári.