Halldóra Björk Halldórsdóttir hefur verið ráðin sem aðstoðarleikskólastjóri á leikskólann Kirkjugerði frá og með 9. júní 2020. Halldóra er leikskólakennari að mennt og hefur einnig diplómu í sérkennslufræðum frá Háskólanum á Akureyri. Halldóra hefur starfað á leikskólanum Kirkjugerði frá árinu 2011 sem almennur leikskólakennari og deildastjóri. Frá haustinu 2019 hefur Halldóra starfað sem verkefnisstjóri og deildastjóri staðgengill leikskólastjóra.