ÍBV sækir heim Þór/KA í dag kl. 15.30 á Þórsvelli, Akureyri, í leik í Pepsi-max deild kvenna.
Í síðustu fimm viðureignum þessara liða hefur Þór/Ka sigrað þá alla. Það er því ljóst að á brattan er að sækja hjá stelpunum í dag.

ÍBV fékk Þrótt Reykjavík í heimsókn síðasta laugardag í fyrstu umferð Pepsi-max deildarinnar og höfðu þar sigur á, 4-3. Þór/KA sigruðu sömuleiðis sinn fyrsta leik, gegn Stjörnunni, 4-1.