Elín Freyja Hauksdóttir yfirlæknir á Heilbrigðisstofnun Suðurlands á Höfn er nýr umdæmislæknir sóttvarna á Suðurlandi.  Hún leysir af Hjört Kristjánsson umdæmislækni sóttvarna á Suðurlandi, sem er í árs leyfi.

Elín Freyja lærði læknisfræði í Kaupmannahöfn og útskrifast þaðan árið 2011. Hún flutti heim ásamt fjölskyldu sinni 2012 að kandidatsári loknu og réð sig til starfa á Höfn þá um haustið.  þar hefur hún starfað síðan og búið ásamt fjölskyldu sinni, en eiginmaður hennar er frá Höfn og starfar þar m.a. sem sjúkraflutningamaður ásamt fleiru.

Elín Freyja hefur verið svæðislæknir sóttvarna síðustu ár og haldið utan um gerð viðbragðsáætlanna fyrir HSU Höfn hvað varðar sóttvarnir og aðra vá.

Hún hefur lagt metnað í viðbragðsáætlanagerð sem og æfingar á notkun hennar, sem hefur komið sér vel á síðustu árum, þar sem oft hefur reynt á þessa kunnáttu viðbragðsaðila á því svæði. Einnig hefur hún haldið utan um mánaðarlegan hitting/æfingar fyrir alla viðbragðsaðila á Hornafirði, til að bæta samvinnu og kunnáttu fólks.

hsu.is