Vinnslustöðin tilkynnir um nýjar ráðstafanir vegna COVID

Vinnslustöðin birti í dag ráðstafanir sem gripið er til vegna þess að „aftur er farið að bera á COVID-19 smitum í landinu, bæði við landamæri og innanlands“, eins og orðrétt segir í tilkynningu til starfsfólksins.
Starfsmenn sem koma erlendis frá geta mætt til vinnu að því gefnu að niðurstaða skimunar við komuna til landsins sé neikvæð. Áskilið er að viðkomandi séu í sem minnstum samskiptum við aðra á vinnustaðnum fyrstu dagana en fari síðan í skimun á nýjan leik á heilsugæslunni í Vestmannaeyjum fimm dögum eftir komu til landsins. Vinnslustöðin greiðir fyrir þá skimun.
Starfsfólk sem sett er í sóttkví eftir komu til landsins má ekki umgangast aðra sem vinna í Vinnslustöðinni.
Starfsfólki sem finnur til veikindaeinkenna er bent á að hafa samband við heilsugæsluna þegar í stað, óska eftir skimun og mæta ekki til vinnu.
Þá kemur enn fremur fram í tilkynningu Vinnslustöðvarinnar:
Það er deginum ljósara að við erum ekki sloppin fyrir horn og lítið þarf til að veiran breiðist aftur út í landinu. Stjórnendur hafa verið í sambandi við sóttvarnaryfirvöld sem leggja áherslu á að þessi þrjú atriði verði áfram höfð í hávegum:

  1. Sóttvarnir (sprittun og handþvottur).
  2. Nándarmörk (tveggja metra reglan).
  3. Forðast mannmergð.

Með hreinlæti og nándarmörkum eigum við að geta forðast smit eins og okkur tókst svo vel í sameiningu þegar faraldurinn var í hámarki hér á landi. Þessar reglur varðandi komur erlendis frá og hugsanlega sýkingu hafa verið settar til verndunar starfsfólkinu.