Í dag klukkan 17.30 mætast á Hásteinsvelli í Pepsí Max deild kvennalið ÍBV og Breiðabliks. Leikurinn var upphaflega settur á klukkan 18:00 en var færður þar sem Blikar þurfa að fljúga í leikinn vegna verkfalls um borð í Herjólfi.

Blikar eru sem stendur í toppbaráttu deildarinnar en ÍBV í áttunda sæti með þrjú stig eftir fjóra leiki.