Sex mánaða rekstraryfirlit Vestmannaeyjahafnar. Var til umræðu á fundi framkvæmda og hafnarrás í gær. Tekjur Vestmannaeyjahafnar fyrstu 6 mánuði ársins eru 178 milljónir en rekstrargjöld utan fjármagnsliða 186 milljónir.

Áætlun ársins 2020 gerði ráð fyrir að tekjur á tímabilinu yrðu 220 milljónir og gjöld um 180 milljónir. Ljóst er að tekjur eru verulega undir væntingum sem helgast að mestu vegna minni umsvifa við höfnina en gert var ráð fyrir. Einnig eru útgjöld meiri en gert var ráð fyrir en 14 milljóna króna kostnaður varð vegna óveðursins í febrúar vegna Blátinds og tjóns á mannvirkjum.

Ráðið lýsir yfir miklum áhyggjum af rekstrarlegri stöðu Vestmannaeyjahafnar og ljóst er að grípa þarf til aðgerða. Ráðið felur framkvæmdastjóra í samráði við formann ráðsins að leggja fram tillögur til að mæta tekjubresti.