Björn Viðar skrifaði fyrr í sumar undir nýjan 1 árs samning við ÍBV. Björn Viðar hefur leikið með liðinu síðustu 2 tímabil við góðan orðstír. Hann tók skóna víðfrægu af hillunni fyrir tímabilið 2018-19, þegar hann hljóp undir bagga þegar markmannsvandræði komu upp í byrjun tímabils og hefur hann stimplað sig virkilega vel inn hjá klúbbnum. Ásamt því að vera frábær og reynslumikill markvörður er Björn sömuleiðis frábær félagsmaður og mikilvægur fyrir móralinn í hópnum.

Við erum ánægð með að fá að njóta krafta hans áfram og hlökkum til áframhaldandi samstarfs segir í tilkynningu frá ÍBV