Þjóðhátíðarblað Vestmannaeyja kemur út föstudaginn 31. júlí þrátt fyrir að Þjóðhátíð 2020 falli niður. Sölubörn eru hvött til að koma í Týsheimilið, föstudaginn 31. júlí kl. 15.00 þar sem þau fá blöð til að selja.

Í ljósi hertra takmarkana og sóttvarnarráðstafana, sem kynntar voru í dag og taka gildi á morgun, er rétt að geta þess að börn fædd 2005 eða síðar eru undanskilin þessum takmörkunum.

Að venju verða góð sölulaun í boði!
Eru Eyjamenn hvattir til að taka vel á móti sölubörnum.
ÍBV – íþróttafélag