Handboltakonan Kristrún Ósk Hlynsdóttir skrifaði fyrr í sumar undir eins árs samning við ÍBV. Kristrúnu þekkja allir ÍBV-arar enda hefur hún leikið með liðinu undanfarin ár. Kristrún lék til að mynda alla 18 deildarleikina í Olís deild kvenna á síðasta tímabili og skoraði í þeim 38 mörk.

Við erum mjög ánægð að hafa tryggt okkur krafta Kristrúnar áfram og hlökum til samstarfsins í vetur segir í tilkynningu frá ÍBV.