Á mánudaginn fara leikskólar bæjarins af fullum krafti af stað, ný börn eru að hefja skólagöngu sína á Sóla og Kirkjugerði og 5 ára börninkveðja og hefja nám í Víkinni.
“Við lifum nú við breyttar aðstæður þar sem einstaklingar sem voru gestkomandi í Vestmannaeyjum sl. helgi hafa greinst með staðfest smit af COVID-19. 48 einstaklingar sem búsettir eru í Vestmannaeyjum eru þegar komnir í sóttkví en enginn er í einangrun (upplýsingar af vef Vestmannaeyjabæjar) við þurfum því að fara mjög gætilega í leikskólunum. Í ljósi þessara aðstæðna sem hér hefur verið farið yfir viljum við ítreka eftirfarandi þætti:
- Meginregla okkar næstu vikurnar verður að taka á móti börnunum úti og einnig að kveðja þau þar.
- Verum meðvituð um eigin smitvarnir, sprittum hendur við komu í leikskólann, það eru sprittbrúsar í forstofum.
- Berum virðingu fyrir 2 m reglunni, ef fleiri eru í fataklefa hinkra þá úti.
- Aðeins 1 komi með barn og sæki það.
- Ekki koma lengra en inn í fataherbergi og dvelja þar sem styst.
- Verum vakandi fyrir flensueinkennum bæði hjá okkur og börnunum, ef foreldrar finna fyrir einkennum biðjum við að þau að komi ekki inn í leikskólann.
- Verum skilningsrík, tillitssöm, kurteis og styðjum hvert annað.
Við munum gera okkar besta í því að sótthreinsa snertifleti og halda ykkur upplýstum,” segir í tilkynningu á vef Vestmannaeyjabæjar