Á fundi fjölskyldu- og tómstundaráðs á þriðjudag var m.a. kynntur íþrótta- og tómstundastyrkir til lágtekjuheimila vegna COVID-19.
„Í fjáraukalögum ríkisins árið 2020 var samþykkt 600 m.kr. framlag til sveitarfélaga í því skyni að gera þeim kleift að veita styrki til tekjulágra heimila þannig að öll börn geti óháð efnahag stundað íþróttir og aðrar tómstundir. Félagsmálaráðuneytið setur fram leiðbeiningar um úthlutun og sveitarfélög sérstakar reglur um íþrótta- og tómstundastyrki fyrir börn á tekjulágum heimilium,“ segir í fundargerðinni.
„Ráðið fagnar þessu framlagi ríkisins og felur yfirfélagsráðgjafa að útbúa sérstakar reglur um íþrótta- og tómstundastyrki fyrir börn á tekjulágum heimilum og framkvæmd úthlutunar.“

838 nýttu frístundarstyrk
Þá fór framkvæmdastjóri sviðsins einnig yfir stöðu frístundastyrkjar 2020. En það sem af er ári hafa 838 börn og ungmenni í aldurshópnum 2-18 ára nýtt sér frístundastyrk Vestmannaeyjabæjar að hluta eða öllu leyti. „Fleiri hafa nýtt sér styrkinn en á sama tíma á síðasta ári. Nú þegar hafa 63% barna í þessum aldurhópi nýtt sér styrkinn miðaða við 37% frá árinu áður.“