Vinna stendur nú yfir við að reisa fjóra nýja hráefnistanka Ísfélagsins við fiskimjölsverksmiðju fyrirtækisins. Tankarnir komu til landsins um miðjan mánuðinn. Tönkunum er ætlað að flýta fyrir löndun á loðnuvertíð til þess að unnt sé að koma skipum aftur til veiða sem fyrst.

Það er Jáverk sem annast það að koma tönkunum á sinn stað. Ljóst er að tilkoma tankanna kemur til með að setja svip sinn á hafnarsvæðið. Þeir sem hafa áhuga á því að fylgjast með framkvæmdinni geta gert það í gegnum vefmyndavél Geisla sem staðsett er á húsnæðinu við Ægisgötu 2.