KFS leikur seinni leik sinn gegn Hamri í Hveragerði í dag kl. 15:30 á Grýluvelli. Fyrri leikurinn fór 1-0 fyrir KFS og má búast við hörkuleik. Liðið sem fer með sigur af hólmi úr rimmunni tryggir sér sæti í úrslitaleik 4. deildar og sæti í 3. deild. Í færslu á facebook síðu liðsins eru stuðningsmenn hvattir til að gera sér glaðan dag og styðja strákana til sigurs í Hveragerði.