Lögreglan á Suðurlandi mun ekki sekta þá ökumenn sem hafa ákveðið að setja nagladekk á bíla sína, þrátt fyrir að ekki sé enn kominn 1. nóvember. Morgunfærð síðustu daga hefur kallað á meiri viðbúnað ökumanna þegar hálka og jafnvel snjór hefur verið á vegum í umdæminu.

Þetta kemur fram í tilkynningu á facebook síðu lögreglunnar á Suðurlandi.