Strákarnir í meistaraflokki ÍBV taka á móti Vestra í dag kl. 24.00 á Hásteinsvelli í leik í Lengjudeildinni í fótbolta.

Vonir ÍBV um að komast upp um deild eru úti og ekki fræðilegur möguleiki að falla. Það er því að engu að keppa nema að klára mótið með reisn.
Fyrri viðureign liðana lyktaði, eins og tæplega helmingur leikjanna í sumar, með jafntefli.