Engin ný smit hafa greinst í Vestmannaeyjum síðustu daga. Enn eru 5 í einangrun og 36 í sóttkví.

Lýst hefur verið yfir neyðarstigi almannavarna á landinu þar sem virk smit eru í öllum landshlutum. Samhliða tóku gildi hertar samkomutakmarkanir sem gilda á öllu landinu og í gær tóku frekari takmarkanir gildi á höfuðborgarsvæðinu vegna fjölda smita.

Staðan á landinu er slæm, sérstaklega á suðvesturhorninu og því er gríðarlega mikilvægt að bæjarbúar gæti að og fylgi fyrirmælum um sóttvarnir og virði reglur um samkomutakmarkanir. Þá vil aðgerðastjórn biðla til bæjarbúa að forðast óþarfa ferðalög á höfuðborgarsvæðið og ef nauðsynlega þarf að ferðast þangað að hafa hægt um sig nokkra daga á eftir.

Gangi ykkur vel!

F.h. aðgerðastjórnar,
Arndís Bára Ingimarsdóttir, aðgerðastjóri.