Vegna hertra aðgerða til að sporna við útbreiðslu Covid-19 og tilmæla sóttvarnarlæknis og Almannavarna um að gert verði hlé á íþróttastarfi ákvað stjórn HSÍ á fundi sínum í dag að fresta mótahaldi í öllum aldursflokkum til og með 19. október nk., staðan verður endurmetin að þeim tíma liðnum.

Mælst var til þess af sóttvarnarlækni að íþróttastarf yrði stöðvað og með þessari ákvörðun vill HSÍ leggja sitt á vogarskálarnar í varnarbaráttunni gegn Covid-19 og því ástandi sem er í samfélaginu. Segir í tilkynningu frá HSÍ.