Fram kom á fundi bæjarráðs í dag að bæjarstjóri hefur átt í samskiptum við fulltrúa flugfélaganna undanfarinn mánuð. Meðal annars Air Iceland Connect um mögulegt áætlunarflug til Vestmannaeyja á markaðsforsendum. Stjórnendur Air Iceland Connect líta á Vestmannaeyjar sem spennandi viðbót við áfangastaði þeirra og hafa ákveðið að hefja áætlunarflug til Eyja næsta vor. Í þessu felast mikil tækifæri til kynningar á Vestmannaeyjum sem áfangastað, bæði fyrir innlendum sem og erlendum ferðamönnum. Einnig skiptir miklu máli fyrir Vestmannaeyinga að áætlunarflug hefjist aftur.