Haukur Guðjónsson eða Haukur á Reykjum eins og hann er jafnan kallaður hefur oftar en ekki farið ótroðnar slóðir þegar kemur að landbúnaði og jarðrækt. Í vor setti hann kartöfluútsæði á sláttugras sem hann hafði lagt á auðan blett úti á Nýjahrauni og stráði svo meira grasi yfir. Árangurinn hefur ekki látið á sér standa. „Ég heyrði viðtal við rússneska konu í Borgarnesi sem ræktaði kartöflur með þessum hætti með góðum árangri, aðferðina hafði hún frá Síberíu og ég ákvað að prufa þetta. Þetta gengur út á það að hylja kartöflugrasið reglulega meðan það er að vaxa. Með þessu móti fæst góð uppskera og mun stærri kartöflur. Ég setti sláttugras tvisvar eða þrisvar yfir það passaði ágætlega að fara og bæta á þegar ég sló blettinn.“ Haukur segir uppskeruna góða. „Þetta eru stærri kartöflur en ég hef vanist í körunum eiginlega hálfgerðar grill kartöflur. Í kílóum talið er þetta svipaðar heimtur og með gamla laginu.“

Efni á þessari síðu er aðeins fyrir áskrifendur. Vinsamlegast skráðu þig inn til að lesa meira eða gerast áskrifandi.

Existing Users Log In