Handknattleikssamband Íslands hefur ákveðið að fresta mótahaldi sínu til 11. nóvember nk. „Vegna takmarkanna á æfingum og keppni í íþróttum hefur HSÍ frestað mótahaldi sínu til 11. nóvember nk,“ segir í tilkynningu frá HSÍ.
„Unnið er að endurröðun leikja í deild og í bikarkeppni meistaraflokka og verður það kynnt nánar í næstu viku, stefnt er að því að hefja leik helgina 11. – 15. nóvember.“

Þá hvetur HSÍ félögin til að fylgja öllum reglum og tilmælum þegar kemur að æfingum félaganna, „það er von okkar allra að mótin geti hafist sem fyrst.“