Foreldrum gunnslólabarna í Vestmannaeyjum barst rétt í þessu tilkynning frá skólastjóra þess efnis að skipulagsdagur verður í Grunnskóla Vestmannaeyja á morgun og því fellur hefðbundin kennsla niður og Víkin 5 ára deild mun opna kl. 10:00. Heilsdagsvistun verður í boði í frístundaveri, hafið samband á: [email protected]. Nánari upplýsingar um framhaldið og skólahald, verða birtar á morgun mánudag.

Fram kemur að stjórnvöld hafa tilkynnt um hertari reglur og takmarkanir til að sporna við útbreiðslu COVID-19 og ná þær til leik- og grunnskólastarfs. Reglugerð um hertara skólastarf er væntanleg í kvöld. Til að veita starfsfólki skólanna svigrúm til að skipuleggja skólastarf í samræmi við þá reglugerð sem væntanleg er þarf að hafa skólastarfi með þessum hætti.