Bæjarstjóri greindi á fundi bæjarráðs í vikunni frá fundum milli Vestmannaeyjabæjar og Sjúkratrygginga Íslands um uppsögn á samningi aðila um rekstur dvalar- og hjúkrunarheimilisins Hraunbúða í Vestmannaeyjum. Ekki er hægt að greina frá innihaldi viðræðnanna við Sjúkratryggingar Íslands að svo stöddu, en upplýst verður um málið þegar niðurstaða liggur fyrir. Bæjarráð þakkaði upplýsingarnar og fól bæjarstjóra að fylgja eftir tillögum ráðsins við forstjóra Sjúkratrygginga Íslands.